Patchy golla - Námskeið

Patchy golla - Námskeið

15.990 kr
Skip to product information
Patchy golla - Námskeið

Patchy golla - Námskeið

15.990 kr
Taxes included. Shipping calculated at checkout.
Lýsing

Átt þú mikið að garnafgöngum, heimagarni sem þú veist ekki hvað þú átt að gera við? 

Langar þig að búa til þína eigin Patchy gollu? 

Þá er þetta námskeið fyrir þig! 

Spornum við sóun á garni og nýtum þá í þína kósý gollu. Allir grófleikar af garni velkomnir!

 

Á þessu námskeiði ætlum við að gera allt þetta í notalegu rými á þeim hraða sem þér hentar. Þú velur þína eigin liti og stærð en færð leiðbeiningu og hvatningu með allt annað. Hugmyndin byggist á því að vinna með afgangsgarn eða það garn sem þú átt heima en auðvitað er velkomið að kaupa nýtt garn sérstaklega fyrir verkefnið ef það hentar þér betur. Hér á staðnum verður eitthvað af mínu afgangsgarni sem sjálfsagt er að nýta.

 

Námskeiðið hentar bæði þeim sem eru nýbyrjaði að prjóna og þeim sem eru lengra komnir. Þó er nauðsynlegt að kunna að prjóna slétt og brugðið. Ef þú ert að dusta rykið af grunnskólaprjóninu þá aðstoða ég við upprifjun á uppfiti, affellingu og hvernig á að taka upp lykkjur.

 

Við hittumst einu sinni í viku í 4 vikur í 2 tíma í senn, gott er að prjóna smá heima milli þess sem við hittumst.

Skráðu þig og byrjaðu að safna afgöngun, heimagarni eða nýju garni til að gera þína eigin gollu í þinni litapallettu. Við skráningu á námskeiðið færðu aðgang af Facebookhópi þar sem hægt er að bítta á afgöngum við aðra á námskeiðinu ef áhugi er fyrir því. 

 

Allir þátttakendur fá 15% afslátt í verlsun á meðan námskeiðinu stendur. Svo ef þig vantar meira garn til að klára þína gollu þá er hægt að versla meira í hana á staðnum. Eða til að verðlauna þig með garni eftir að hafa komið þínum afgöngum í nyt.

 

Það sem þú þarft að taka með er: 

  • Garn í þína peysu. Hægt er að nota allt garn og blanda saman mismunandi fínu eða grófu garni. Magn í peysu er þar af leiðandi breytilegt eftir hversu þykkt garn er notað. Til viðmiðunar notaði ég 940 gr í mína, notaði mest DK, fingering, lace og mohair. 
  • 40 cm hringprjón nr. 5.
  • 40 cm hringprjón nr. 6.
  • 60 eða 80 cm hringprjón nr. 6.

 

Við hittumst þriðjudagana: 1., 8., 15. og 22. september.
Klukkan 18:00 - 20:00.
Verð: 15.990 kr.
ATH! Að ef lágmarksfjölda þátttakanda næst ekki fellur námskeiðið niður.
Leiðbeinandi er Inga Björk Matthíasdóttir, eigandi Uppfits.

Námskeiðið er haldið á vinnustofunni minni í iðnaðarbili á Týsnesi 22b, hurð nr. 8. 

ATH! að salernisaðstaða vinnustofunar er því miður ekki aðgegnileg hreyfihömluðum. 

 

You might also like...