SW er enska skamstöfunin fyrir SuperWash. Þá er garnið meðhöndlað þannig að það þoli þvott í vél á 30 gráðum án þess að þófna eða minnka. Athugið þó að handlitað SuperWash garn getur misst lit við þvott í þvottavél.
SuperWash garn er oft með meiri glansáferð vegna meðhöndlunar þess til að gefa því Superwash eiginleikana. Þetta garn hentar oft í leiksskólafatnað sem á það til að verða oftar skítugt í leik hjá litlu krílunum okkar og kostur að geta sett þau í þvottavél á 30 gráður.
Þeir sem vilja ekki SuperWash garn geta því leitað eftir skammstöfunni NSW sem stendur fyrir Non SuperWash.