{"product_id":"patchy-golla-namskeid","title":"Patchy golla - Námskeið","description":"\u003cp class=\"MsoNormal\" style=\"text-align: center;\"\u003e\u003cspan lang=\"IS\" style=\"color: rgb(0, 0, 0);\"\u003eÁtt þú mikið að garnafgöngum, heimagarni sem þú veist ekki hvað þú átt að gera við? \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\" style=\"text-align: center;\"\u003e\u003cspan lang=\"IS\" style=\"color: rgb(0, 0, 0);\"\u003eLangar þig að búa til þína eigin Patchy gollu? \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\" style=\"text-align: center;\"\u003e\u003cspan lang=\"IS\" style=\"color: rgb(0, 0, 0);\"\u003eÞá er þetta námskeið fyrir þig! \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\" style=\"text-align: center;\"\u003e\u003cspan lang=\"IS\" style=\"color: rgb(0, 0, 0);\"\u003eSpornum við sóun á garni og nýtum þá í þína kósý gollu. Allir grófleikar af garni velkomnir! \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan lang=\"IS\" style=\"color: rgb(0, 0, 0);\"\u003e \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan lang=\"IS\" style=\"color: rgb(0, 0, 0);\"\u003eÁ þessu námskeiði ætlum við að gera allt þetta í notalegu rými á þeim hraða sem þér hentar. Þú velur þína eigin liti og stærð en færð leiðbeiningu og hvatningu með allt annað. Hugmyndin byggist á því að vinna með afgangsgarn eða það garn sem þú átt heima en auðvitað er velkomið að kaupa nýtt garn sérstaklega fyrir verkefnið ef það hentar þér betur. Hér á staðnum verður eitthvað af mínu afgangsgarni sem sjálfsagt er að nýta. \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan lang=\"IS\" style=\"color: rgb(0, 0, 0);\"\u003e \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan lang=\"IS\" style=\"color: rgb(0, 0, 0);\"\u003eNámskeiðið hentar bæði þeim sem eru nýbyrjaði að prjóna og þeim sem eru lengra komnir. Þó er nauðsynlegt að kunna að prjóna slétt og brugðið. Ef þú ert að dusta rykið af grunnskólaprjóninu þá aðstoða ég við upprifjun á uppfiti, affellingu og hvernig á að taka upp lykkjur. \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan lang=\"IS\" style=\"color: rgb(0, 0, 0);\"\u003e \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan lang=\"IS\" style=\"color: rgb(0, 0, 0);\"\u003eVið hittumst einu sinni í viku í 4 vikur í 2 tíma í senn, gott er að prjóna smá heima milli þess sem við hittumst. \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan lang=\"IS\" style=\"color: rgb(0, 0, 0);\"\u003eSkráðu þig og byrjaðu að safna afgöngun, heimagarni eða nýju garni til að gera þína eigin gollu í þinni litapallettu. Við skráningu á námskeiðið færðu aðgang af Facebookhópi þar sem hægt er að bítta á afgöngum við aðra á námskeiðinu ef áhugi er fyrir því. \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan lang=\"IS\" style=\"color: rgb(0, 0, 0);\"\u003e \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan lang=\"IS\" style=\"color: rgb(0, 0, 0);\"\u003eAllir þátttakendur fá 15% afslátt í verlsun á meðan námskeiðinu stendur. Svo ef þig vantar meira garn til að klára þína gollu þá er hægt að versla meira í hana á staðnum. Eða til að verðlauna þig með garni eftir að hafa komið þínum afgöngum í nyt.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan lang=\"IS\" style=\"color: rgb(0, 0, 0);\"\u003e \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan lang=\"IS\" style=\"color: rgb(0, 0, 0);\"\u003eÞað sem þú þarft að \u003cb\u003etaka með\u003c\/b\u003e er: \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cul style=\"margin-top: 0in;\" type=\"disc\"\u003e\n\u003cli class=\"MsoNormal\" style=\"color: rgb(0, 0, 0);\"\u003e\u003cspan lang=\"IS\" style=\"color: rgb(0, 0, 0);\"\u003eGarn í þína peysu. Hægt er að nota allt garn og blanda saman mismunandi fínu eða grófu garni. Magn í peysu er þar af leiðandi breytilegt eftir hversu þykkt garn er notað. Til viðmiðunar notaði ég 940 gr í mína, notaði mest DK, fingering, lace og mohair. \u003c\/span\u003e\u003c\/li\u003e\n\u003cli class=\"MsoNormal\" style=\"color: rgb(0, 0, 0);\"\u003e\u003cspan lang=\"IS\" style=\"color: rgb(0, 0, 0);\"\u003e40 cm hringprjón nr. 5.\u003c\/span\u003e\u003c\/li\u003e\n\u003cli class=\"MsoNormal\" style=\"color: rgb(0, 0, 0);\"\u003e\u003cspan lang=\"IS\" style=\"color: rgb(0, 0, 0);\"\u003e40 cm hringprjón nr. 6.\u003c\/span\u003e\u003c\/li\u003e\n\u003cli class=\"MsoNormal\" style=\"color: rgb(0, 0, 0);\"\u003e\u003cspan lang=\"IS\" style=\"color: rgb(0, 0, 0);\"\u003e60 eða 80 cm hringprjón nr. 6. \u003c\/span\u003e\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan lang=\"IS\" style=\"color: rgb(0, 0, 0);\"\u003e \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan lang=\"IS\" style=\"color: rgb(0, 0, 0);\"\u003eVið hittumst þriðjudagana: 1., 8., 15. og 22. september.\u003cbr\u003eKlukkan 18:00 - 20:00.\u003cbr\u003eVerð: 15.990 kr.\u003cbr\u003eATH! Að ef lágmarksfjölda þátttakanda næst ekki fellur námskeiðið niður.\u003cbr\u003eLeiðbeinandi er Inga Björk Matthíasdóttir, eigandi Uppfits.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan lang=\"IS\" style=\"color: rgb(0, 0, 0);\"\u003eNámskeiðið er haldið á vinnustofunni minni í iðnaðarbili á Týsnesi 22b, hurð nr. 8. \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan lang=\"IS\" style=\"color: rgb(0, 0, 0);\"\u003eATH! að salernisaðstaða vinnustofunar er því miður ekki aðgegnileg hreyfihömluðum. \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan lang=\"IS\" style=\"color: rgb(0, 0, 0);\"\u003e \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"IM Art","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":42935875338302,"sku":null,"price":15990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0569\/8456\/7870\/files\/rn-image_picker_lib_temp_4e7ed2df-32ed-4053-80c0-ef4a442ff696.png?v=1785836623","url":"https:\/\/ingamattart.com\/products\/patchy-golla-namskeid","provider":"IM Art","version":"1.0","type":"link"}